Veftré Print page English

Samúðarkveðja til Pólverja


Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur í morgun sent Bronisław Komorowski, forseta pólska þingsins og starfandi forseta landsins, samúðarkveðjur Íslendinga til pólsku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss þar sem Lech Kaczyński forseti Póllands, Maria Kaczyński eiginkona hans og fjölmargir aðrir forystumenn landsins og nánir samverkamenn forsetans létu lífið. Á þessum sorgartímum er hugur okkar með fjölskyldum og ættingjum þeirra sem létust og Pólverjum öllum, ekki síst þeim sem hafa deilt kjörum með Íslendingum um áraraðir.


Vinátta Pólverja og Íslendinga hefur hvílt á traustum grunni eins og Lech Kaczyński forseti sýndi í verki með eftirminnilegum hætti á undanförnum misserum. Hans mun ætíð verða minnst með virðingu og þökk á Íslandi.