Veftré Print page English

Upplýsingatækni í þágu sjávarútvegs


Forseti tekur þátt í heimsókn forseta Maldíveyja, Mohameds Nasheed til fyrirtækisins TrackWell sem sérhæfir sig í þróun upplýsingatækni. Fyrirtækið hefur hannað eftirlitskerfi með túnfiskveiðum á Maldíveyjum, þar sem boð um ferðir veiðiskipanna  eru send um gervihnetti til aðalstöðva fyrirtækisins á Íslandi.  Þannig er fylgst með veiðum á Maldíveyjum sérhverja klukkustund alla daga ársins. Rætt um framlag upplýsingatækni til þróunar sjálfbærs sjávarútvegs.