Sendiherra Króatíu
Forseti á fund með nýjum sendiherra Króatíu hr. Ladislav Pivcevic sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um þróun mála í Króatíu, glímuna við margvíslega erfiðleika og samskipti við Evrópusambandið, svo og möguleika á aukinni samvinnu Íslands og Króatíu á sviði menningarmála.