Sendiherra Makedóníu
Forseti á fund með nýjum sendiherra Makedóníu frú Marija Efremova sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um áhuga Makedóníumanna á aðild að Atlantshafsbandalaginu og Evrópusambandinu, þörfina á lausn deilumála við Grikkland sem og ýmsa möguleika í aukinni samvinnu Íslands og Makedóníu.