Veftré Print page English

Sendiherra Venesúela


Forseti á fund með nýjum sendiherra Venesúela hr. Jose de Jesus Sojo Reyes sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um þróun orkumála í veröldinni, hvernig olíuríki eins og Venesúela leggja aukna áherslu á verkefni á sviði endurnýjanlegrar orku en vatnsorka er nýtt á öflugan hátt í Venesúela. Rætt var um möguleika á samvinnu við íslenska verkfræðinga og orkufyrirtæki, einnig á sviði jarðhita. Þá var og rætt um tækifæri til aukinnar samvinnu á sviði menningar og lista, m.a. með þátttöku í listahátíðum, bókmenntahátíðum og kvikmyndahátíðum.