Sendiherra Austurríkis
Forseti á fund með nýjum sendiherra Austurríkis dr. Daniel Krumholz sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um Evrópumótið í handbolta sem haldið var í Austurríki, möguleika á samvinnu á sviði hreinnar orku í Mið- og Austur-Evrópu, samstarf Íslands og Austurríkis á alþjóðavettvangi sem og viðhorf Austurríkis til umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu.