Veftré Print page English

Halaleikhópurinn


Forseti sækir frumsýningu Halaleikhópsins á verkinu Sjöundá - Svartfugl en það er byggt á verki Gunnars Gunnarssonar í nýrri leikgerð Ágústu Skúladóttur og Þorgeirs Tryggvasonar. Leikhópurinn samanstendur af ólíkum einstaklingum, fötluðum sem ófötluðum, og var hann stofnaður árið 1992 og hefur haft að markmiði að iðka leiklist fyrir alla. Meðal styrktaraðila leikhópsins eru Sjálfsbjörg og Öryrkjabandalag Íslands.