Forseti Íslands
The President of Iceland
Samúðarkveðjur til Haítí
Forseti sendi í dag samúðarkveðjur til forseta Haítí René Préval og tjáði honum stuðning íslensku þjóðarinnar á tímum erfiðleika, sorgar og áfalla. Hugur okkar er hjá fjölskyldum og vinum þeirra sem látist hafa og öllum sem glíma við afleiðingar þessara hörmulegu atburða. Mikilvægt væri að alþjóðasamfélagið sýndi íbúum Haítí öflugan stuðning. Íslensku björgunarsveitirnar kæmu með mikla reynslu frá glímunni við afleiðingar jarðskjálfta víða um heim.
Letur: |
| |