Veftré Print page English

Sendiherra Evrópusambandsins


Forseti á fund með nýjum sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi Timo Summa en Evrópusambandið hefur nú opnað sendiráð á Íslandi. Rætt var um samstarf Íslands við Evrópusambandið á undanförnum árum, bæði innan EES samningsins og Schengen, þróun mála á Norðurslóðum,  umræður á Íslandi um aðildina að Evrópusambandinu og stöðu efnahagsmála.