Veftré Print page English

Viðburðir í Ohio. Fréttatilkynning


Ríkisháskólinn í Ohio, fjölmennasti háskóli Bandaríkjanna, gerði í gær, sunnudaginn 13. desember, forseta Íslands Ólaf Ragnar Grímsson að heiðursdoktor við hátíðlega athöfn í Columbus. Forseta er veittur þessi heiður fyrir framlag hans til alþjóðasamfélagsins og baráttunnar gegn loftslagsbreytingum, fyrir að efla samstarf vísindamanna og fræðastofnana á vettvangi umhverfismála og nýtingar náttúruauðlinda og stuðla þannig að lausnum á brýnum vandamálum veraldar.

Athöfnin fór fram á hátíðarsamkomu háskólans og sóttu hana um fimmtán þúsund manns: prófessorar, kennarar og starfslið háskólans, útskriftarnemendur og fjölskyldur þeirra. Kvöldið áður sat forseti hátíðarkvöldverð í boði rektors háskólans, Gordon Gee.

Meðan á dvölinni í Ohio stóð flutti forseti Íslands tvo fyrirlestra. Sá fyrri fjallaði um loftslagsbreytingar, bráðnun jökla og árangur af landgræðslu og gróðurvernd á Íslandi, svo og hvað aðrar þjóðir geti lært af því starfi. Fyrirlesturinn var haldinn í boði Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins við Ríkisháskólann í Ohio, Ohio Agricultural Research and Development Center, og sóttu hann um 500 vísindamenn, rannsakendur og stúdentar. Fyrirlesturinn bar heitið "Soil as the New Soldier in Fighting Climate Change: Iceland’s Lessons for World Sustainability" og má nálgast hann á heimasíðu embættis forseta.

Síðari fyrirlesturinn var haldinn í boði Alþjóðaráðs Columbusborgar, Columbus Council of World Affairs, og fjallaði hann um loftslagsbreytingar, nýtingu hreinnar orku, reynslu Íslendinga og möguleika Bandaríkjanna til að virkja jarðhita. Fyrirlesturinn bar heitið "The Future of Climate Change: Economic Growth through Energy Transformation" og sótti hann mikill fjöldi áhrifamanna úr fræðasamfélagi og viðskiptalífi Ohio. Fyrirlesturinn má nálgast á heimasíðu forsetaembættisins.

Þá átti forseti nokkra viðræðufundi með prófessorum og forystumönnum við Ohio ríkisháskólann. Þar var einkum fjallað um samvinnu við Ísland á sviði landgræðslu, loftslags- og jöklarannsókna og nýtingar kolefnis á hagkvæman hátt með skynsamlegri landnotkun og nýjum búskaparháttum.

Forseti sat kvöldverð með fræðimönnum sem tengjast Íslandi, bæði á sviði náttúrufræða, íslenskra bókmennta og þjóðfræða. Einnig hitti forseti að máli íslenska námsmenn sem stunda nám við Ohio ríkisháskólann.