Veftré Print page English

Fundur með þjóðarleiðtoga Abu Dhabi


Forseti á fund með þjóðarleiðtoga Abu Dhabi sem lýsir sérstakri ánægju með störf íslenskra sérfræðinga, verkfræðinga og vísindamanna þar í landi. Miklar vonir séu bundnar við jarðhitaboranir í hinni nýju Masdarborg en árangur þeirra skipti sköpum fyrir vistvænan grundvöll hennar. Í viðræðunum var áréttuð nauðsyn þess að komið væri til móts við kröfur ungrar kynslóðar um sívaxandi áherslu á vernd umhverfisins. Abu Dhabi hefði ríkan vilja til efla samstarf sitt við Ísland á sviði umhverfismála, vistvænnar orku og vísinda- og tækniþekkingar.