Íslenskir jarðhitasérfræðingar í Abu Dhabi
Forseti á fund með sveit íslenskra sérfræðinga sem starfa að jarðhitaverkefni í Abu Dhabi á vegum ráðgjafafyrirtækisins
Reykjavik Geothermal. Fyrirtækið vinnur nú að undirbúningi borana eftir jarðhita á borgarsvæðinu, en ætlunin er að nýta jarðhita til að knýja loftkælingu borgarinnar.