Veftré Print page English

Verkefni í Abu Dhabi


Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sat um helgina fund dómnefndar Zayed orkuverðlaunanna (Zayed Future Energy Prize) en þau eru meðal veglegustu verðlauna veraldar, veitt fyrir nýjungar og forystu á vettvangi hreinnar orku. Fundurinn var haldinn í Abu Dhabi enda eru verðlaunin kennd við fyrrum leiðtoga landsins. Þau verða afhent á Heimsþingi um orkumál framtíðar (World Future Energy Summit) sem haldið verður í Abu Dhabi dagana 18.-21. janúar næstkomandi. Verðlaunaupphæðin nemur 1,5 milljónum Bandaríkjadala og bárust yfir 600 tilnefningar víða að úr veröldinni. Auk forseta Íslands skipa dómnefndina dr. R. K. Pachauri, formaður Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna (IPCC), Susan Hockfield rektor MIT háskólans í Bandaríkjunum, Norman Foster arkitekt og hönnuður fjölmargra þekktra bygginga víða um heim, Browne lávarður og fyrrum forstjóri BP og Helene Pelosse framkvæmdastjóri hinnar nýju alþjóðastofnunar endurnýjanlegrar orku, IRENA.

Þá heimsótti forseti byggingarsvæði hinnar væntanlegu Masdar borgar sem ætlað er að verða fyrsta mengunarlausa borg veraldar. Útblástur koltvísýrings verður enginn og allur úrgangur endurunninn. Sveit íslenskra sérfræðinga vinnur nú að undirbúningi borana eftir jarðhita á borgarsvæðinu, en ætlunin er að nýta jarðhita til að knýja loftkælingu borgarinnar.

Forsetinn átti ítarlegar viðræður við hina íslensku sérfræðinga sem starfa að þessu jarðhitaverkefni en það er á vegum fyrirtækisins Reykjavik Geothermal (RG). Skoðaði forseti hið væntanlega borsvæði þar sem nú þegar er búið að reisa undirstöður borsins en áformað er að hefja boranir í næsta mánuði. Að sögn fulltrúa RG verða þetta fyrstu jarðhitaboranirnar í þessum heimshluta. Einnig skoðaði forseti rannsóknar- og háskólabyggingar sem eru að rísa á svæðinu.

Þá átti forseti fund með Helene Pelosse, framkvæmdastjóra IRENA, um reynslu og þekkingu í nýtingu hreinnar orku sem Íslendingar geta látið öðrum þjóðum í té. Forseti hitti einnig tvo íslenska stúdenta sem stunda framhaldsnám við hinn nýstofnaða Masdar háskóla sem settur var á fót í samvinnu við bandaríska háskólann MIT. Allur náms- og dvalarkostnaður íslensku stúdentanna er greiddur af Masdar sem bauð forseta Íslands á liðnu ári að hlutast til um að íslenskir námsmenn kæmu til háskólanáms í Abu Dhabi. Nú hefur verið ákveðið að bjóði fleiri Íslendingum að stunda nám við Masdar háskólann.

Fyrr í dag átti forseti fund með þjóðarleiðtoga Abu Dhabi, Sheik Mohamed bin Zayed Al Nahyan, sem lýsti sérstakri ánægju með störf íslenskra sérfræðinga, verkfræðinga og vísindamanna í Abu Dhabi. Miklar vonir væru bundnar við jarðhitaboranir í hinni nýju Masdar borg en árangur þeirra skipti sköpum fyrir vistvænan grundvöll hennar. Í viðræðunum var áréttuð nauðsyn þess að komið væri til móts við kröfur ungrar kynslóðar um sívaxandi áherslu á vernd umhverfisins. Abu Dhabi hefði ríkan vilja til efla samstarf sitt við Ísland á sviði umhverfismála, vistvænnar orku, vísinda- og tækniþekkingar.

Loks hitti forseti í morgun starfsmenn íslensku verkfræðistofunnar Eflu, en verkfræðingar og tæknifræðingar á hennar vegum vinna nú við byggingu nýs álvers í Abu Dhabi, EMAL, sem verður meðal stærstu álvera veraldar. Eflumenn nýta sér á þessum vettvangi reynslu og þekkingu sem þeir hafa aflað sér á Íslandi á undanförnum árum.