Heimssamtök matreiðslumeistara
Forseti á fund með Gissuri Guðmundssyni, forseta Heimssamtaka matreiðslumeistara,
World Association of Chefs Societies og stjórnarmanninum Helga Einarssyni. Íslendingar voru kosnir til forystu í þessum heimssamtökum á liðnu ári og kynntu þeir forseta árangurinn af störfum þeirra, sem meðal annars felur í sér víðtæka kynningu á íslenskri matargerðarlist, hráefni og kunnáttu íslenskra matreiðslumanna. Gissur Guðmundsson verður forseti samtakanna næstu árin og skipar ásamt öðrum Íslendingum stjórn þeirra.