Veftré Print page English

Rafmagnsbílar


Forseti ræðir við fulltrúa indverska fyrirtækisins Reva og íslenska fyrirtækisins Northern Light sem gert hafa samning um innflutning á 100 rafmagnsbílum til Íslands. Á fundinum var einnig sendiherra Indlands á Íslandi Sivaraman Swaminathan. Rætt var um samvinnu landanna á þessu sviði en hún gæti auðveldað Íslandi að verða meðal fyrstu landa í veröldinni með bílaumferð knúna á vistvænan hátt.