Alþjóðleg orkusamvinna
Forseti á fund með fulltrúum
Alþjóða vatnsorkusambandsins (International Hydropower Association) og
Alþjóða jarðhitasambandsins (International Geothermal Association) um samstarf alþjóðlegra samtaka á sviði hreinnar orku en þau hafa verið að efla tengsl sín innan vébanda
International Renewable Energy Alliance, REN. Rætt var um hvernig slíkt samtarf getur stuðlað að aukinni hlutdeild hreinnar orku í orkubúskap einstakra landa og heimshluta, og orðið öflugt framlag í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Alþjóða vatnsorkusambandið hélt þing sitt á Íslandi síðastliðið sumar.