Veftré Print page English

Lögmaður Færeyja


Forseti á fund með lögmanni Færeyja Kaj Leo Johannesen  sem heimsækir Ísland. Forseti þakkaði Færeyingum fyrir stuðning í kjölfar bankahrunsins og síðan var rætt um nauðsyn á aukinni samvinnu þjóðanna á komandi árum og áratugum, með hliðsjón af vaxandi vægi norðurslóða, stjórn fiskveiða, nýjum siglingaleiðum og nýtingu orkulinda. Einnig var rætt um samstarf á sviði menntunar og rannsókna og hina sameiginlegu sögu og vináttu Færeyinga og Íslendinga.