Veftré Print page English

Málþing og viðræðufundir í New York og Washington


Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson mun í þessari viku taka þátt í umræðum á þremur alþjóðlegum málþingum í New York og Washington og eiga fundi með þjóðarleiðtogum, sérfræðingum og áhrifafólki í alþjóðamálum, orkumálum, loftslagsmálum og á fleiri sviðum.

Forseti hefur þegið boð Bills Clintons, fyrrum forseta Bandaríkjanna, að vera málflytjandi í pallborðsumræðum á heimsþingi Clinton stofnunarinnar, Clinton Global Initiative, þar sem fjallað verður um hvernig fjármálamarkaðir geta þjónað almannaheill á heimsvísu. Einnig mun forseti sækja aðra fundi þingsins og eiga viðræður við ýmsa þátttakendur þess. Heimsþingið var stofnað af Clinton þegar hann lét af embætti forseta Bandaríkjanna og sækja það þjóðarleiðtogar, vísindamenn, fjölmiðlafólk, fulltrúar almannasamtaka og áhrifamenn á fleiri sviðum.

Forseti þáði einnig boð Samkeppnisráðsins í Bandaríkjunum, U.S. Council on Competitiveness, um að vera meðal málflytjenda á Leiðtogafundi um orkumál, National Energy Summit, sem haldinn er í Washington 23.-24. september. Þar verður fjallað um hvernig nýting hreinna og sjálfbærra orkugjafa getur aukið samkeppnishæfni þjóða. Forsetinn mun m.a. fjalla um að reynsla Íslendinga sé efniviður í samvinnu milli þjóða á tæknisviði og saga þjóðarinnar sýni hvernig hægt er að byggja upp orkuöryggi og auka um leið samkeppnishæfni efnahagslífsins. Meðal þátttakenda á leiðtogafundinum verða ýmsir forystumenn úr bandarískum þjóðmálum og viðskiptalífi.

Þá hefur forseti þegið boð Louise Blouin stofnunarinnar um að flytja lokaræðuna á alþjóðlegu málþingi um lærdómana sem draga má af fjármálakreppunni og hvernig hægt er að byggja upp hagsæld að nýju á traustan og öruggan hátt.

Ráðgert er að sjónvarpa öllum þessum umræðum á netinu auk þess sem bandarískir og alþjóðlegir fjölmiðlar munu fylgjast með málþingunum.

Forseti mun einnig eiga viðræður við ýmsa þjóðarleiðtoga, sérfræðinga og áhrifafólk í loftslagsmálum. Á morgun, þriðjudaginn 22. september, mun forseti sitja samræðufund með hópi bandarískra hagfræðinga til að fjalla um reynslu Íslendinga, hina alþjóðlegu fjármálakreppu og hvað þurfi að gera til að koma í veg fyrir að svo alvarleg áföll og kreppur endurtaki sig í framtíðinni. Samræðufundurinn er haldinn í boði dr. Josephs Stiglitz Nóbelsverðlaunahafa sem nýverið heimsótti Ísland.

Þá mun Dorrit Moussaieff forsetafrú sækja málþing um einhverfu og aðstoð við einstaklinga og fjölskyldur. Málþingið er haldið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og er forsetafrúin meðal skipuleggjenda þess. Hún mun einnig, í boði Rania Jórdaníudrottningar og Wendi Murdoch, sitja umræðukvöldverð um þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna.