Veftré Print page English

Sendiherra Rúmeníu


Forseti á fund með nýjum sendiherra Rúmeníu á Íslandi, hr. Alexandru Victor Micula, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um árangurinn af opinberri heimsókn forseta til Rúmeníu haustið 2007 og hve árangursrík starfsemi íslenskra fyrirtækja sem starfað hafa í Rúmeníu hefur verið en þau hafa haldið áfram að eflast þrátt fyrir hina alþjóðlegu fjármálakreppu. Þessi fyrirtæki starfa á ýmsum sviðum og meðal þeirra er ein stærsta prentsmiðja í Evrópu. Einnig var rætt um samvinnu Íslands og Rúmeníu á vettvangi Evrópumála og innan Atlantshafsbandalagsins.