Umhverfisvænar samgöngur
Forseti flytur
setningarræðu á þriðju alþjóðlegu ráðstefnunni um nýjar orkulausnir í samgöngum,
Driving Sustainability. Þingið sækja fulltrúar frá ýmsum löndum, sérfræðingar og vísindamenn, forystumenn borgarmála og borgarskipulags, fulltrúar orkufyrirtækja og bílaframleiðenda. Ráðstefnan er í ár studd af ráðherraráði Norðurlandaráðs og tengist meðal annars formennsku Íslands í ráðinu.