Veftré Print page English

Sýningar og tónleikar í menningarhúsinu á Dalvík


Forseti er viðstaddur opnun sýningar á verkum helstu myndlistarmanna Íslands frá síðustu öld í nýja menningarhúsinu Berg á Dalvík. Þá er forseti einnig viðstaddur opnun sýningarinnar „Fram til fortíðar“ þar sem munir af byggðasafninu Hvoli fá framhaldslíf í verkum núlifandi listamanna. Þá sækir forseti tónleika kóra og listamanna úr byggðarlaginu en það eru fyrstu tónleikarnir í hinu nýja menningarhúsi.