Veftré Print page English

Afkomendur Stephans G. Stephanssonar


Forseti á fund með Stephan Benediktson, dóttursyni skáldsins Stephans G. Stephanssonar, ásamt fjölskyldu hans sem heimsækir slóðir og átthaga skáldsins á Íslandi. Rætt var um hvernig best væri að efla bókmenntaarfleifð Stephans G. Stephanssonar og einnig sérstaka styrki fyrir íslenska listamenn, The Benediktson Fellowship for Icelandic Artists sem Stephan Benediktson og kona hans hafa stofnað til og felur í sér að íslenskum listamönnum er boðið að dvelja á Banff listamiðstöðinni í Kanada. Ragnar Kjartansson myndlistarmaður var sá fyrsti sem hlaut slíkan styrk.