Veftré Print page English

Keppnisgreinar og viðburðir á landsmóti


Forseti fylgist með ýmsum keppnisgreinum á landsmóti UMFÍ á Akureyri: frjálsum íþróttum, siglingum, dansi, dráttarvélaakstri, bocciakeppni fatlaðra og fleiru. Þá sótti forseti ráðstefnu ungs forystufólks í æskulýðs- og íþróttasamtökum í Evrópu þar sem fjallað var um skipulag landsmóta og héraðsmóta; forseti ávarpaði ráðstefnuna og svaraði fyrirspurnum. Einnig sat forseti hádegisverð með forystu UMFÍ og landsmótsnefndum þar sem rætt var um skipulag og undirbúning landsmóta bæði þessa móts á Akureyri og næsta landsmóts sem verður á Selfossi 2013.