Vatnsaflsráðstefna
Forseti á fund með forystumönnum alþjóðlegrar vatnsaflsráðstefnu sem haldin er á Íslandi næstu daga. Alþjóðasamtökin
International Hydropower Association efna til ráðstefnunnar en hana sækja forystumenn og sérfræðingar víða að úr veröldinni. Ráðstefnan hefst miðvikudaginn 24. júní en daginn áður verður fundur í ráðgjafaráði samtakanna og mun forseti ávarpa þann fund.