Veftré Print page English

Hondúras


Forseti á fund með nýjum sendiherra Hondúras á Íslandi frú Iliana Waleska Pastor Melghem sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um möguleika á nýtingu jarðhita í Miðameríku, þjálfun sem veitt er í Jarðhitaháskóla Sameinuðu þjóðanna og Sjávarútvegsháskóla Sameinuðu þjóðanna sem fram fer á Íslandi sem og hvernig reynslan af samvinnu Norðurlanda getur nýst ríkjum í Miðameríku til að auka og styrkja samvinnu sín á milli.