Eistland
Forseti á fund með nýjum sendiherra Eistlands á Íslandi hr. Arti Hilpus sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um samvinnu Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna, samskipti Íslands og Eistlands á undanförnum árum og nauðsyn þess að styrkja þau í framtíðinni. Einnig var fjallað um reynslu Eistlands af aðildinni að Evrópusambandinu og sambúð Eista við Rússland.