Múlalundur
Forseti heimsækir Múlalund og tekur þátt í hátíðahöldum í tilefni af 50 ára afmæli Múlalundar sem stofnaður var af SÍBS til að auðvelda fötluðu fólki að hasla sér völl á vinnumarkaði. Forseti fluti ávarp þar sem hann rifjaði upp viðhorfið til berklaveikinnar fyrir háflri öld og ræddi hinn mikla árangur sem Múlalundur hefði náð, ekki aðeins sem fyrirtæki heldur líka í að breyta viðhorfi samfélagsins til þess hvað einstaklingar geta gert og hverju samtakamáttur getur áorkað.
Myndir