Veftré Print page English

Ríkisráðsfundir


Ríkisráðsfundir verða haldnir á Bessastöðum síðdegis í dag, sunnudaginn 10. maí. Fyrri fundurinn hefst kl. 17:00 og síðari fundurinn kl. 18:15. Ljósmyndurum og fréttamönnum er heimilt að vera viðstaddir upphaf fyrri fundarins og myndataka verður síðan að loknum síðari fundinum.