Veftré Print page English

Óman


Forseti á fund með nýjum sendiherra Ómans á Íslandi hr. Khalifa bin Ali Al-Harthy sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um aukna samvinnu Íslands við ríki í Miðausturlöndum, einkum smærri ríki, meðal annars á sviði orkumála, og möguleika á að þróa samvinnu Íslands og Ómans á því sviði svo og varðandi nýtingu sjávarauðlinda.