Veftré Print page English

Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar


Forseti afhendir Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar en þau hlaut að þessu sinni Landbúnaðarháskólinn á Reykjum sem gegnt hefur veigamiklu hlutverki í menntun þorra þess fólks sem starfar í græna geiranum á Íslandi og unnið markvisst að endurmenntun og námskeiðahaldi í garðyrkju- og umhverfismálum, auk þess sem skólinn hefur skipað stóran sess í lífi íbúa Hveragerðis. Guðríður Helgadóttir staðarhaldari Landbúnaðarháskólans á Reykjum tók við verðlaununum.