Veftré Print page English

Sveitarstjórnarmenn í Snæfellsbæ


Forseti á fund með Ásbirni Óttarssyni forseta bæjarstjórnar, Kristni Jónassyni bæjarstjóra og fleiri forsvars- og framkvæmdamönnum í Snæfellsbæ. Rætt var um þróun nýrra atvinnutækifæra í héraðinu, samstarf sveitarfélaga á Snæfellsnesi, nýtingu hinnar fjölþættu náttúru á Snæfellsnesi og á Breiðafirði í þágu alþjóðlegrar rannsóknastarfsemi sem og þekkingartengda ferðaþjónustu. Myndir