Víetnam
Forseti á fund með nýjum sendiherra Víetnams á Íslandi hr. Vu Van Luu sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Sendiherrann ítrekaði boð til forseta um að heimsækja Víetnam og lagði áherslu á að aukin samvinna landanna gæti skapað góð tækifæri, einkum á sviði viðskipta og efnahagslífs.