Veftré Print page English

Lettland


Forseti á fund með nýjum sendiherra Lettlands á Íslandi hr. Andris Sekacis sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um samvinnu Eystrasaltsríkja og Norðurlanda á alþjóðlegum vettvangi og aukin tengsl Íslands og Lettlands á undanförnum árum, bæði á sviði viðskipta og alþjóðamála. Einnig var fjallað um áhrif hinnar alþjóðlegu efnahagskreppu á Lettland og Ísland og hvað læra má af þeirri reynslu og þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til í hvoru landi fyrir sig.