Víkingaskipið Íslendingur
Forseti heimsækir nýja byggingu í Reykjanesbæ sem reist hefur verið yfir
víkingaskipið Íslending og ræðir við Gunnar Marelsson og Árna Sigfússon bæjarstjóra um hvernig skipið og sú víkingasýning frá Smithsonian safninu í Washington sem komið verður upp í byggingunni mun nýtast við eflingu ferðaþjónustu á svæðinu. Ráðgert er að byggingin verði vígð í maí.