Veftré Print page English

Samúðarkveðjur til Ástrala


Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í dag ríkisstjóra Ástralíu Quentin Bryce og stjórnvöldum landsins samúðarkveðjur vegna skógareldanna sem geisað hafa þar en fjöldi Ástrala hefur látið lífið og þúsundir misst heimili sín.

Í samúðarkveðjunni minnti forseti á íslenskar fjölskyldur sem búsettar eru í Ástralíu og samhug ættingja þeirra og þjóðarinnar með Áströlum á erfiðleikatímum.