Veftré Print page English

Verðlaun Forvarnardagsins


Forseti afhendir verðlaun í ratleik Forvarnardagsins við hátíðlega
athöfn á Bessastöðum. Ratleikurinn var samstarfsverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Ungmennafélags Íslands og Bandalags íslenskra skáta, innan vébanda Forvarnardagsins sem fram fór fyrr í haust. Mörg hundruð grunnskólanemendur sendu inn lausnir í ratleiknum og þrír þeirra hlutu verðlaun á Bessastöðum. Þau eru Stefán Valur Stefánsson Hlíðaskóla, Vala Rún Valtýsdóttir Laugalandsskóla og Vera Sigurðardóttir Grunnskóla Bláskógabyggðar. Nánari upplýsingar um ratleikinn og Forvarnardaginn má finna á www.forvarnardagur.is.