Veftré Print page English

Sendiherra Suður-Afríku


Forseti á fund með sendiherra Suður-Afríku Ismail Coovadia sem senn lætur af störfum. Rætt var um þann árangur sem náðst hefur með aukinni samvinnu landanna á undanförnum árum og hvernig íslensk reynsla getur nýst víða í Afríku, bæði á sviði orku, heilbrigðismála, fiskveiða og félagslegrar og lýðræðislegrar þróunar.