Veftré Print page English

Vettvangsheimsókn: Vaki


Forseti heimsækir fyrirtækið Vaka sem framleiðir teljara fyrir fiskeldi og verslunarmiðstöðvar. Tæknin er byggð á íslensku hugviti og eru tækin smíðuð hér. Þau hafa þegar verið seld í hundruðatali til fjölmargra landa. Nýr samningur við Marine Harvest, stærsta laxeldisfyrirtæki heims með eldi í Noregi, Skotlandi, Chile og Kanada, er dæmi um þau sóknarfæri sem fyrirtækið hefur á komandi árum.