Veftré Print page English

Vettvangsheimsókn: SPRON


Forseti heimsækir SPRON og á fund með stjórnendum sparisjóðsins og ræðir við starfsfólk í höfuðstöðvum SPRON um atburði síðustu vikna, mikilvægi þess að styrkja sparisjóðina í landinu og á hvern hátt sé hægt að nýta þann mannauð og þekkingu sem þróast hefur innan bankakerfisins. Á fundinum greindi forseti einnig, líkt og í vettvangsheimsókn til Glitnis og Byrs, frá reynslu sinni af samræðum við þúsundir landsmanna í vettvangsheimsóknum að undanförnu.