Framhaldsskólinn á Laugum
Forseti tekur þátt í afmælishátíð á Laugum í Þingeyjarsýslu í tilefni af 20 ára afmæli
Framhaldsskólans. Í ávarpi sínu fjallaði forseti um mikilvægi fjölþættrar menntunar, þau miklu áhrif sem skólastarfsemi á Laugum hefði haft á síðustu öld og áréttaði að á tímum yfirstandandi erfiðleika væri nauðsynlegt að styrkja trú unga fólksins á framtíð Íslands. Þar gegndu skólar lykilhlutverki. Að lokinni afmælishátíð var sameiginlegur málsverður í skólanum.