Veftré Print page English

Vettvangsheimsóknir forseta Íslands


Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson mun á næstu dögum heimsækja vinnustaði, skóla, samfélagsstofnanir, byggðarlög og hjálparmiðstöðvar.

Í heimsóknunum verður lögð áhersla á samræður um hvernig Íslendingar geti þrátt fyrir hina miklu erfiðleika sem nú blasa við treyst undirstöður efnahagslífs og samfélags, sótt fram til nýrra og betri tíma, nýtt margvíslegar auðlindir landsins og fjölþættan mannauð sem þjóðin býr yfir. Mikilvægt er að efla samstöðu og gagnkvæman stuðning landsmanna allra, bjartsýni og sóknarhug.

Vettvangsheimsóknir forsetans hefjast á morgun, mánudaginn 13. október.