Veftré Print page English

Þýskir blaðamenn


Forseti tekur á móti hópi þýskra blaðamanna og ræðir við þá um samstarf Íslands og Þýskalands, verkefni við nýtingu hreinnar orku í Þýskalandi og samstarf ríkja á norðurslóðum. Einnig væntanlega útgáfu á Íslendingasögunum í nýjum þýðingum á þýsku og undirbúning að því að Ísland verði í heiðurssæti á Bókakaupstefnunni í Frankfurt árið 2011.