Veftré Print page English

Fjölbrautaskóli Suðurlands - Göngum til góðs


Forseti ýtir úr vör söfnun Rauða krossins Göngum til góðs á fjöldafundi nemenda og kennara í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Á samkomunni voru forystumenn Rauða krossins á Suðurlandi og einnig á landsvísu. Söfnunin fer fram næstu daga. Rauði krossinn hefur á undanförnum árum efnt til söfnunarinnar Göngum til góðs og hefur afrakstri hennar verið varið bæði til starfsemi Rauða krossins hér heima og á svæðum sem þarfnast hjálpar, einkum í Afríku. Forseti flutti ræðu á samkomunni og svaraði fyrirspurnum nemenda. Hann hvatti þá einnig til að taka þátt í sjálfboðastarfi Rauða krossins.