Veftré Print page English

Sendiherra Filippseyja


Forseti á fund með sendiherra Filippseyja frú Victoria S. Bataclan sem senn lætur af störum. Rætt var um aukna samvinnu Íslands og Filippseyja á nýtingu jarðvarma en bæði löndin geta framleitt hreina orku í stórum stíl. Einnig var rætt um að þau ríki sem byggja orkubúskap sinn í auknum mæli á hreinni orku hafi samstöðu í alþjóðlegum umræðum og samningum í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.