Veftré Print page English

Sendiherra Tyrklands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Tyrklands á Íslandi hr. Hayati Güven sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um aukna samvinnu Íslands og Tyrklands, áhuga íslenskra orkufyrirtækja á þátttöku í byggingu vatnsorkuvera og jarðvarmavera í Tyrklandi, aðild Istanbúl að forvarnarverkefninu Ungmenni í Evrópu - gegn fíkniefnum (Youth in Europe) sem stjórnað er frá Íslandi og byggt á rannsóknum íslenskra sérfræðinga.