Veftré Print page English

Mitsubishi


Forseti á fund með forráðamönnum Heklu, umboðsfyrirtækis Mitsubishi, um samvinnu íslenskra aðila og Mitsubishi um nýtingu hreinnar orku. Fundurinn er í framhaldi af viðræðum forseta við Fukue, einn af heimsforstjórum Mitsubishi sem fram fór á Bessastöðum í maí. Fyrirtækið mun taka þátt í alþjóðlegu ráðstefnunni Driving Sustainability sem haldin verður á Íslandi í september en forseti er verndari ráðstefnunnar og mun flytja ávarp við setningu.