Veftré Print page English

Myndstefsverðlaun


Forseti afhendir Myndstefsverðlaunin 2008 í Listasafni Íslands. Verðlaunin hlaut Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndari fyrir ljósmyndir af náttúru Íslands, mönnum og dýrum. Tilnefningar til verðlaunanna voru frá aðildarfélögum Myndstefs og voru auk verðlaunahafans tilnefnd: Eggert Pétursson myndlistarmaður, Snæfríður Þorsteinsdóttir og Hildigunnur Gunnarsdóttir hönnuðir, Steinunn Sigurðardóttir tískuhönnuður, Studió Granda arkitektar, Vík Prjónsdóttir vöruhönnuðir, Vytautas Narbutas sviðsmyndahönnuður.