Forseti Íslands
The President of Iceland
Jarðhitaráðstefna í Bandaríkjunum
Forseti flytur ræðu á jarðhitaráðstefnu í New York þar sem fjallað er um sóknarfæri í nýtingu jarðhita í Bandaríkjunum og víða um heim. Ráðstefnan er haldin á vegum Jarðhitasambands Bandaríkjanna, Geothermal Energy Association, og sótti hana fjöldi vísindamanna, sérfræðinga, stjórnendur orkufyrirtækja og fulltrúar banka og fjárfestingarsjóða. Dan Reicher, framkvæmdastjóri loftslags- og orkusviðs Google og Alexander Karsner, aðstoðarorkumálaráðherra Bandaríkjanna voru ásamt forseta aðalræðumenn ráðstefnunnar.
Letur: |
| |