Veftré Print page English

Norðurslóðir - Ísland og Noregur


Forseti flytur ræðu á málþingi í Ósló sem haldið var á vegum Rannsóknarþings Norðurslóða og norsku rannsóknarstofnunarinnar Ocean Futures. Meðal þátttakenda á málþinginu voru norskir vísindamenn og sérfræðingar í málefnum norðurslóða, forystumenn almannasamtaka og á vettvangi norskra þjóðmála. Málþingið var m.a. haldið í tengslum við undirbúning að sjötta Rannsóknarþingi Norðurslóða sem haldið verður í Ósló árið 2010 en fimmta Rannsóknarþingið verður haldið í Alaska 24.-27. september næstkomandi.