Veftré Print page English

Environmental Defense Fund


Forseti á fund með hópi frá Environmental Defense Fund í Bandaríkjunum sem er að kynna sér íslenska náttúru. Á fundinum var rætt um árangur Íslendinga við nýtingu hreinnar orku og stjórnun fiskveiða, rætt um bráðnun jökla, bæði á Íslandi og annars staðar í heiminum, sem og yfirvofandi hættu á loftslagsbreytingum. Environmental Defense Fund er öflug áhrifastofnun í umhverfismálum í Bandaríkjunum.